Forum Lögmenn

Forum Lögmenn

Um Forum

Frá 1989

Samstarf og starfsemi Forum Lögmanna má rekja allt aftur til ársins 1989. Síðan þá hafa lögmenn stofunnar veitt alhliða lögmannsþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja, opinberra stofnana o.fl.

Lögmannsstofan hefur vaxið ört síðustu ár sem hefur gefið lögmönnum stofunnar færi á því að sérhæfa sig á einstökum sviðum lögfræðinnar. Þá hafa Forum Lögmenn ávallt lagt ríka áherslu á að þeir sjálfir annist málflutning fyrir dómstólum og tryggi þannig viðskiptavinum sínum að sami lögmaðurinn fylgi málinu frá upphafi til enda.

Eigendur Forum Lögmanna hafa allir mikla reynslu af málflutningsstörfum. Hafa þeir flutt á annað þúsund dómsmál fyrir héraðsdómum landsins og rekið nálægt þrjú hundruð mála fyrir viðskiptamenn sína fyrir Hæstarétti Íslands. Að baki lögmannsstofunnar er því gríðarleg reynsla auk þess sem þar vinnur dugmikið starfsfólk, lögfræðingar, viðskiptafræðingar og fleiri.

Forum Lögmenn hafa lagt áherslu á góð tengsl við lagadeildir háskólanna hér á landi og hafa lögmenn stofunnar meðal annars sinnt stundakennslu á sviði kröfuréttar, skaðabótarréttar og evrópuréttar við lagadeildir Háskóla Íslands, Háskóla Reykjavíkur og Háskólans á Bifröst.

Af hverju Forum

Persónuleg þjónusta

Forum Lögmenn leggja ríka áherslu á að lögmenn stofunnar annist sjálfir málflutning fyrir dómstólum og tryggi þannig viðskiptavinum sínum að sami lögmaðurinn fylgi málinu frá upphafi til enda.

Áratuga reynsla af málflutningi

Eigendur stofunnar hafa flutt á annað þúsund dómsmál fyrir héraðsdómum landsins og rekið nálægt þrjú hundruð mála fyrir Hæstarétti Íslands.

Tengsl við háskólasamfélagið

Lögmenn stofunnar hafa sinnt stundakennslu á sviði kröfuréttar, skaðabótarréttar og evrópuréttar við lagadeildir Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Bifröst.

Hafðu samband

Forum Lögmenn veita alhliða lögmannsþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og opinberra stofnana.

Hafðu samband við okkur til að ræða málið.

Hafa samband