Forum Lögmenn veita alhliða lögmannsþjónustu á flestum sviðum lögfræðinnar.
Lögmenn stofunnar hafa mikla reynslu af málflutningi og hafa unnið að flóknum málum á fjölmörgum réttarsviðum. Hér má finna yfirlit yfir starfssvið stofunnar.
Síðari ár hafa viðskiptavinir lögmannsstofunnar í auknum mæli nýtt sér að leita lögfræðilegrar umsagnar um álitaefni, hvort sem um er að ræða réttarstöðu sína, túlkun á samningum, lögum o.fl.
Ágætt er að hafa í huga mikilvægi þess að vera meðvitaður um eigin réttarstöðu sem fyrst þegar upp kemur t.d. ágreiningsmál, svo unnt sé að taka strax réttar ákvarðanir. Við lítum svo á að hagsmunir viðskiptavinarins felist m.a. í að fá upplýsingar um styrkleika málstaðarins og veikleika. Röng ákvörðun getur bæði stofnað málstaðnum í hættu og orðið kostnaðarsöm.

