Forum Lögmenn
Samstarf og starfsemi Forum Lögmanna má rekja allt aftur til ársins 1989. Síðan þá hafa lögmenn stofunnar veitt alhliða lögmannsþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja, opinberra stofnana o.fl.
Lögmannsstofan hefur vaxið ört síðustu ár sem hefur gefið lögmönnum stofunnar færi á því að sérhæfa sig á einstökum sviðum lögfræðinnar. Þá hafa Forum Lögmenn ávallt lagt ríka áherslu á að þeir sjálfir annist málflutning fyrir dómstólum og tryggi þannig viðskiptavinum sínum að sami lögmaðurinn fylgi málinu frá upphafi til enda.
Persónuleg þjónusta.
Reynsla
Áratuga reynsla af málflutningi
Eigendur Forum Lögmanna hafa allir mikla reynslu af málflutningsstörfum og hafa lögmenn stofunnar meðal annars sinnt stundakennslu á sviði kröfuréttar, skaðabótarréttar og evrópuréttar við lagadeildir Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Bifröst.
Starfssvið
Sérsviðin okkar
Einstaklingar og tjón
Hagsmunagæsla fyrir einstaklinga vegna slysa, sakamála og fjölskyldumála.
Nær yfir
Skaðabótamál · TORT – Innheimta slysabóta · Sakamál · Sifja- og barnabótaréttur
Málflutningur og ágreiningur
Áratuga reynsla af málflutningi fyrir dómstólum, EFTA-dómstólnum og Mannréttindadómstól Evrópu.
Nær yfir
Málflutningur · Evrópuréttur · Álitsgerðir og umsagnir
Fyrirtæki og viðskipti
Ráðgjöf og hagsmunagæsla fyrir fyrirtæki á sviði samninga, samkeppni og gjaldþrota.
Nær yfir
Samningsgerð · Samkeppnisréttur · Gjaldþrotaréttur
Starfsfólk




